Sýningarsvæðin 2019
Opin sýningarsvæði alla helgina
- Land Art í Varmárgili – gengið frá Lystigarði upp Varmárgil.
- Blómaskreytingar og fallegur gróður í aðalgötu bæjarins og inni í Lystigarðinum Fossflöt Sýningarsvæði í og við Lystigarðinn:** gróðurhús, hænsnakofi, blómaker, garðyrkjutæki, býræktendur, íslenskar landnámshænur o.fl.
- Gróðurhúsið Eden v/Þelamörk: Afurðir græna geirans til sölu, fjölbreytt sýning og sala á pottablómum, markaðir, sýning á páfagaukum frá Dýraríkinu o.fl.
- Sýning á vistvænum farartækjum – rafbílar, rafskutlur o.fl. v/Hótel Örk.
- Umhverfis- og bændamarkaður, Breiðumörk 21 – Markaðstorg með nýjum og ferskum afurðum beint frá býli, vistvænar vörur, flokkunarílát o.fl.
- Hveragarðurinn er opinn alla helgina. Húsdýrasýning við Drullusundið fyrir ofan Hverasvæðið.
Listamaður að störfum á hátíðinni:
Matthías Viðar Sigurðsson, myndhöggvari vinnur við gerð listaverks Elísabetar Jökulsdóttur, Þetta líður hjá, vestan við íþróttahúsið v/ Skólamörk.
Aðal sýningarsvæðið er í miðbænum og í lystigarðinum á Fossflöt.
Lifandi tónlist verður í Lystigarðinum.